Heimsglugginn відкриті
[search 0]
більше
Download the App!
show episodes
 
Loading …
show series
 
Donald Trump var aftur til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvakt Rásar 1 og við heyrðum í biskupi Washington biðja forsetann um að sýna miskunn. Ummæli Trumps um Panama og Grænland voru einnig á dagskránni er Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson um erlend málefni. Fjallað var um sögu Panama og skipaskurðinn þ…
  continue reading
 
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu erlend málefni við Boga Ágústsson eins og jafnan á fimmtudagsmorgnum á Morgunvaktinni. Samið hefur verið um vopnahlé á Gaza eftir grimmdarleg átök, þar sem talið er að nærri 50 þúsund Palestínumenn hafi beðið bana og á annað þúsund Ísraelsmenn. Forsætisráðherra Dana ræddi í síma í gær við v…
  continue reading
 
Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna segist ekki geta útilokað að beita hervaldi eða efnahagslegum aðgerðum til að ná Grænlandi og Panama undir yfirráð Bandaríkjanna. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu Grænlandsmál við Boga Ágústsson í Heimsglugganum. Bandaríkjamenn hafa raunar haft herstöðvar á Grænlandi síðan 1951 s…
  continue reading
 
Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu stöðu alþjóðamála í upphafi nýs árs. Bogi sagði að ekki yrði sagt að 2024 hafi verið gott ár á alþjóðavettvangi: í kosningum fengu popúlskir flokkar víða byr í seglin, umhverfisráðstefna Sameinuðu þjóðanna skilaði engu og stór hluti heimsins virðist kæra sig kollóttan um sífellt hættulegri hamfarah…
  continue reading
 
Norski Verkamannaflokkurinn er í miklum öldudal um þessar mundir eins og stjórnarflokkar víðar á Norðurlöndum. Framfaraflokkurinn nýtur mests fylgis og þykir tíðindum sæta að hann skuli njóta meiri stuðnings en Høyre sem hefur haft afgerandi forystu á hægri væng norskra stjórnmála. Sænska kosningarannsóknin við háskólann í Gautaborg hefur birt list…
  continue reading
 
Bashar al-Assad hefur hrakist frá völdum í Sýrlandi og óvissa hvað tekur við. Ólíklegt er að almenningur fái ráðið því hverjir taki við stjórn, það hefur aldrei verið lýðræði í Sýrlandi í árþúsunda sögu landsins. Farið var yfir sögu landsins í Heimsglugga vikunnar.
  continue reading
 
Vilborg Ása Guðjónsdóttir var gestur Heimsgluggans. Hún er alþjóðastjórnmálafræðingur og vinnur að doktorsritgerð um þátttöku þingmanna í alþjóðastarfi. Hún segir enn eima eftir af þeirri afstöðu að slíkt starf sé „frí í útlöndum“ og að viðhorf gagnvart alþjóðastarfinu sé neikvætt og ekki borin virðing fyrir því.Marius Borg Høiby, stjúpsonur Hákons…
  continue reading
 
Heimsglugginn fjallaði að þessu sinni um hlut utanríkis- og varnarmála í kosningabaráttunni fyrir Alþingiskosningarnar 30. nóvember. Bogi Ágústsson ræddi við Davíð Stefánsson og Piu Hansson. Davíð er formaður Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál og Pia er forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands en þau standa fyrir fundi …
  continue reading
 
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Guðrún Hálfdánardóttir ræddu við Boga Ágústsson um fall þýsku stjórnarinnar. Þar sauð upp úr eftir deilur um ríkisútgjöld á milli stjórnarflokkanna. Frjálsir demókratar vildu draga úr útgjöldum til félagsmála og grænna verkefna til að loka gati í ríkisbúskapnum. Jafnaðarmenn og Græningjar gátu ekki sætt sig við þau áfo…
  continue reading
 
Stjórnmál í Japan eftir þingkosningar um síðustu helgi voru til umræðu í Heimsglugganum í Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við Kristínu Ingvarsdóttur, lektor í japönskum fræðum við Háskóla Íslands. Þingkosningar á sunnudag sættu talsverðum tíðindum. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, LDP, sem hefur farið með stjórn í Japan nánast óslitið í…
  continue reading
 
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson um stöðu lýðræðis og kosningar á árinu 2024. Talað hefur verið um árið sem „kosningaárið mikla“ og þegar hafa kjósendur í 67 löndum greitt atkvæði í þing- eða forsetakosningum. Í þessum löndum búa 3,4 milljarðar fólks. Áður en 2024 verður liðið verður einnig gengið til ko…
  continue reading
 
Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson minntust Alex Salmonds sem lést um síðustu helgi. Hann var óskoraður leiðtogi sjálfstæðishreyfingar Skota fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 2014. Þeir ræddu einnig erfiðleika Northvolt í Svíþjóð sem átti að verða lykilfyrirtæki í sókn evrópskra bílaframleiðenda á rafbílamarkaðnum, risastórt fyrirtæki sem framlei…
  continue reading
 
Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans og ræddi friðarráðstefnu Höfða, friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands, sem fer fram í Iðnó í dag.Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu svo um leiðtogakjör í breska Íhaldsflokknum þar sem almennir félagar kjósa l…
  continue reading
 
Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu um hörmuleg átök í Mið-Austurlöndum þar sem veruleg hætta er á frekari útbreiðslu og hörmungum fyrir fólk sem þarna býr. Gyðingahatur hefur aukist mikið síðasta árið eftir árás Hamas á Ísrael og gífurlega mannskæðar árásir Ísraelshers á Gaza. Þá ræddu þau einnig landsfund br…
  continue reading
 
Stjórnmálaflokkar í Bretlandi halda landsfundi þessar vikurnar, Frjálslyndir demókratar í síðustu viku, Verkamannaflokkurinn í þessari og Íhaldsflokkurinn í næstu viku. Hamingja og eindrægni ríkti hjá Frjálslyndum sem fengu 72 þingmenn kjörna í þingkosningunum í júlí. Ekki hafa setið fleiri Frjálslyndir í neðri málstofunni í heila öld. Ætla hefði m…
  continue reading
 
Heimsglugginn fjallaði þessa vikuna um vaxtalækkun í Bandaríkjunum, Bromma-flugvöll í Stokkhólmi, stríðið í Úkraínu, skýrslu Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um Venesúela og Mossad, leyniþjónustu Ísraelsmanna. Mossad er almennt talin bera ábyrgð á sprengjutilræðum gegn Hisbollah-liðum í Líbanon.…
  continue reading
 
Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu margt í Heimsglugga vikunnar á Morgunvakt Rásar-1. Nefna má hlutleysi Sviss, norrænan sjónvarpsþátt um öryggismál á Norðurlöndum eftir innrás Rússa í Úkraínu og inngöngu Finna og Svía í NATO. Við heyrðum í nýjum sænskum utanríkisráðherra, Nigel Farage í breska þinginu og Allan Lichtman, sem hefur reyns…
  continue reading
 
Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur, var gestur Heimsgluggans. Hann og Bogi Ágústsson ræddu stríðið í Úkraínu, harðar loftárásir Rússa, sókn Úkraínumanna inn í Kúrsk-hérað í Rússlandi og breytingar á ríkisstjórn Úkraínu. Valur telur ólíklegt að stríðið vinnist á vígvellinum, það endi líklega með vopnahléi og Úkraínumenn þurfi að sætta si…
  continue reading
 
Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu ágreiningsefni innan danska ríkissambandsins. Færeyingar vilja sjálfstæða aðild að WTO, Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Grænlendingar vilja að Grænlendingur verði skipaður í nýtt embætti norðurslóðasendiherra. Nokkuð varð ágengt til að leysa þennan ágreining á fundi leiðtoga landanna í vikunni. Þá ræd…
  continue reading
 
Fleiri deyja vegna neyslu fíkniefna í Skotlandi en nokkru öðru landi í Evrópu. Skotar hafa miklar áhyggjur, vonir eru að neyslurými geti fækkað dauðsföllum. Stjórnvöld í Danmörku og Svíþjóð hafa ákveðið að auka mjög samstarf í baráttu gegn glæpagengjum. Dómsmálaráðherrar landanna og ríkislögreglustjórar hittust og ákváðu aðgerir sem eiga að stoppa …
  continue reading
 
Heimsglugginn hófst á því að rætt var um nokkra helstu atburði síðustu vikna á erlendum vettvangi. Meginefnið voru þó samræður Boga Ágústssonar og Jóns Óskars Sólness um stöðuna í bandarískum stjórnmálum og baráttuna fyrir kosningarnar í nóvember. Viðsnúningur hefur orðið frá því að Joe Biden forseti dró sig í hlé og Kamala Harris varð frambjóðandi…
  continue reading
 
Guðrún Hálfdánardóttir og Vera Illugadóttir ræddu við Boga Ágústsson um bresku þingkosningarnar sem eru í dag. Við heyrðum í sir John Curtice, helsta kosningaskýranda BBC. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræddi við hann um stöðuna í breskum stjórnmálum. Þá var Ólöf með, beint frá Lundúnum, og sagði frá andrúmsloftinu í höfuðborg Bretlands þar sem all…
  continue reading
 
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um lausn Julians Assange úr fangelsi í Bretlandi og við heyrðum hluta úr frétt Kristins Hrafnssonar í sjónvarpsfréttum 2010 þegar birt var myndband af árás bandarískrar þyrlu á fréttamenn Reuters í Bagdad. Það var meðal gagna sem Wikileaks birtu og leiddu til þess að ba…
  continue reading
 
Emmanuel Macron forseti Frakklands boðaði óvænt til þingkosninga í lok júní og þykir mörgum hann taka mikla áhættu. Bogi Ágústsson ræddi við Damien Degeorges, sem er alþjóðastjórnmálafræðingur með meistaragráðu í norrænum fræðum frá Sorbonne-háskóla og doktorsgráðu í stjórnmálafræði. Þeir ræddu stöðuna í frönskum stjórnmálum. meistaragráðu í norræn…
  continue reading
 
Hægriflokkar áttu erfiðara uppdráttar í norrænu Evrópusambandsríkjunum í kosningunum til Evrópuþingsins en í Frakklandi og Þýskalandi. Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu þetta í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Óvæntar þingkosningar í Frakklandi bar einnig á góma sem og tilhneigingu Rishis Sunaks, forsætisráðherra Breta, t…
  continue reading
 
Jón Ormur Halldórsson stjórnmálafræðingur segir að óvænt fylgistap BJP, flokks Narendra Modis forsætisráðherra Indlands, sé í raun sigur lýðræðis. Hann ræddi við Boga Ágústsson um úrslit kosninga í Suður-Afríku og á Indlandi. Í Suður-Afríku tapaði Afríska þjóðarráðið, ANC, meirihluta á þingi í fyrsta sinn frá því að aðskilnaðarstjórn hvíta minnihlu…
  continue reading
 
Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu óánægju Grænlendinga með stöðu sína í norrænu samstarfi. Múte B. Egede, formanni landsstjórnar Grænlands, var ekki boðið á fund forsætisráðherra Norðurlandanna í Stokkhólmi. Grænlendingar og Færeyingar hafa óskað eftir sjálfstæðri aðild að Norðurlandaráði en það strandar á því að löndin eru ekki sjálfs…
  continue reading
 
Hundblautur í hellirigningu fyrir utan Downing-stræti 10 boðaði Rishi Sunak forsætisráðherra til nýrra þingkosninga í Bretlandi 4. júlí. Fram að tilkynningu Sunaks höfðu breskir miðlar verið undirlagðir af vitnisburði Paulu Vennells, fyrrverandi forstjóra póstsins. Rannsóknarnefnd kannar það sem kallað hefur verið stærsta réttarfarshneyksli í sögu …
  continue reading
 
Svíþjóðardemókratarnir hafa á laun rekið ,,tröllaverksmiðjur" á netinu sem dreifðu áróðri gegn innflytjendum og óhróðri um stjórnmálamenn í öðrum flokkum. Svíþjóðardemókratarnir styðja minnihlutastjórn Ulfs Kristerssons en hafa samt á laun kastað skít í forystumenn ríkisstjórnarflokkanna. Þeir hafa brugðist ókvæða við en ekki er talið að stjórnin f…
  continue reading
 
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um kosningar á Salómons-eyjum, við heyrðum falsaða yfirlýsingu Mette Frederiksen um frídaga í Danmörku, tillögu Magdalenu Anderson, leiðtoga sænskra Jafnaðarmanna, um refsingar gegn ESB-ríkjum sem brjóta lýðræðisreglur sambandsins. Aðalefnið var þó vandræði Skoska þjóða…
  continue reading
 
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um eldsvoðann í Kaupmannahöfn er Børsen brann og byggingar Kristjáns fjórða konungs. Þau ræddu og nýja bók Liz Truss, sem var forsætisráðherra Bretlands í 49 daga. Hún hefur farið mikinn í kynningu á bók sinni þar sem hún ver sjálfa sig og stefnu sína sem leiddi til þes…
  continue reading
 
Jón Ormur Halldórsson, doktor í stjórnmálafræði, var gestur Heimsgluggans. Jón Ormur þekkir vel til á Indlandi. Hann er fyrrverandi háskólakennari og höfundur fjölda greina og bóka um alþjóðamál og að margra mati mati einn skarpasti greinandi alþjóðastjórnmála á Íslandi. Bogi Ágústsson ræddi við hann um þingkosningar sem hefjast á Indlandi í næstu …
  continue reading
 
Björn Bjarnason var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu Atlantshafsbandalagið en 75 ár eru í dag frá því stofnsáttmáli bandalagsins var undirritaður. Björn er fyrrverandi ráðherra og alþingismaður og jafnframt sérfræðingur um utanríkis-, öryggis- og varnarmál. Norræna ráðherranefndin fékk hann fyrir nokkrum árum til að gera tillögur u…
  continue reading
 
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu um Haítí og langa sorgarsögu landsins. Haítí var frönsk þrælanýlenda og annað landið í Ameríku sem lýsti yfir sjálfstæði á eftir Bandaríkjunum eftir afar blóðuga þrælauppreisn. Fátækt, spilling, stjórnleysi og náttúruhamfarir hafa orðið óhamingju landsins að vopni. Svo má heita að algjört stjórnley…
  continue reading
 
Spjall Þórunnar Elísabetar Bogadóttur og Eyrúnar Magnúsdóttur við Boga Ágústsson hófst á sagnfræðilegum nótum. Fyrir nokkrum dögum var opnuð póstsending í þjóðskjalasafni Breta 214 árum eftir að pósturinn var sendur frá Færeyjum til Kaupmannahafnar. Pósturinn komst ekki alla leið því Anne-Marie, skipið sem flutti póstinn, var hertekið af breska flo…
  continue reading
 
Hlaupársþáttur Heimsgluggans var ekki um heimsmálin heldur um lífseiga söguskoðun Íslendinga sem var meðal annars mótuð af bókum Jónasar frá Hriflu og Jóns J. Aðils sem kenndar voru áratugum saman. Draga má þetta saman í að saga Íslands hafi byrjað þegar frjálsbornir höfðingjar í Noregi sættu sig ekki við kúgun Haraldar hárfagra konungs og flýðu ti…
  continue reading
 
Bogi Ágústsson , Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu örlög þeirra sem hafa sett sig upp á móti Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Alexei Navalny hefur bæst í hóp þeirra sem hafa dáið beint eða óbeint vegna andstöðunnar við forsetann. Á Vesturlöndum er litið svo á að Navalny hafi verið myrtur að undirlagi Pútíns. Í hópi þeirra Rússa…
  continue reading
 
Jón Óskar Sólnes var gestur Heimsgluggans að þessu sinni og þeir Bogi Ágústsson ræddu stöðuna í bandarískum stjórnmálum. Jón Óskar, sem var eitt sinn fréttamaður RÚV, hefur búið í Washington síðustu ár og fylgist vel með stjórn- og þjóðfélagsmálum. Hann telur að staða Donalds Trumps meðal Repúblikana sé miklu sterkari en þegar hann tilkynnti forset…
  continue reading
 
Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi. Að þessu sinni var rætt um loftrýmiseftirlit yfir Íslandi en norski flugherinn annast slíkt eftirlit um þessar mundir. Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segir mikilvægt fyrir Norðmenn að fylgjast vel með á svæðum nærri Noregi og Íslendingar eru sta…
  continue reading
 
Aðalefni Heimsgluggans var viðtal Boga Ágústssonar við Jón Óskar Sólnes um stöðuna í bandarískum stjórnmálum og einkum framboðsmál repúblikana. Jón Óskar var lengi fréttamaður hjá RÚV en hefur verið búsettur í Washington síðustu ár. Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu einnig stöðu NATO-umsóknaraðildar Svía við Boga og nýjustu sko…
  continue reading
 
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson héldu áfram að ræða um málefni bresku póstþjónustunnar og stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins á síðari tímum þegar tæplega eitt þúsund útbússtjórar í pósthúsum voru sóttir til saka fyrir skjalafals og þjófnað og á áttunda hundrað voru sakfelldir. Næstum öll voru saklaus, sökudólgurinn var …
  continue reading
 
Björn Þór Sigbjörnsson ræddi við Boga Ágústsson um eitt mesta réttarfarshneyksli síðari ára í Bretlandi. Síðustu daga hefur allt verið á öðrum endanum í Bretlandi vegna sjónvarpsþátta um það sem kallað hefur verið alvarlegasta hneyskli í breskri réttarfarssögu á síðari árum, þar sem hundruð saklausra voru dæmd fyrir fjárdrátt og þjófnað. Þáttaröðin…
  continue reading
 
Í fyrsta Heimsglugga ársins á Morgunvaktinni á Rás 1 ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson við Boga Ágústsson um vetrarveður á Norðurlöndum og í norðanverðri Evrópu, ástandið í Mið-Austurlöndum og kosningar sem verða á árinu.
  continue reading
 
Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir ræddu við Boga Ágústsson um leiðtogafund ESB þar sem málefni Úkraínu verða á dagskrá, þingkosningar í Serbíu, ungfrú alheim sem er í ónáð stjórnvalda í Níkaragúa og komandi forsetakosningar í Finnlandi.Leiðtogafundur Evrópusambandsins í dag snýst að miklu leyti um málefni Úkraínu, annars vegar áframhalda…
  continue reading
 
Bresk stjórnmál voru á dagskrá þegar Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson í vikulegu Heimsgluggaspjalli. Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra, sat fyrir svörum í gær hjá nefnd sem rannsakar viðbrögð við COVID-19 faraldrinum. Johnson var auðmjúkur og byrjaði á að biðjast afsökunar, sagði að með því að …
  continue reading
 
Heimsgluggi vikunnar hófst á umræðu um Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem er látinn 100 ára að aldri. Kissinger var ótvírætt meðal mestu áhrifamanna í alþjóðamálum á seinni hluta 20. aldar, hann var það sem kallað hefur verið realpolitiker, hafði lítinn áhuga á að tengja utanríkispólitík við mannréttindi eða skilyrða …
  continue reading
 
Þetta verða erfið fjögur ár, sagði Helgi Hrafn Guðmundsson sagnfræðingur um Argentínu eftir að Javier Milei var kjörinn forseti um síðustu helgi. Þeir Bogi Ágústsson ræddu saman um land og þjóð. Helgi Hrafn bjó í Argentínu í um áratug, lærði og starfaði þar. Hann segir efnahagsstefnuna lengi hafa einkennst af skammtímahugsun. Ástandið sé afar slæmt…
  continue reading
 
Heimsglugginn á Morgunvaktinni á Rás 1 fjallaði um átök í stjórnmálum á Bretlandi og í Portúgal. Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands gerði verulegar breytingar á ríkisstjórn sinni á mánudag. Suella Braverman innanríkisráðherra var rekin, James Cleverly tók við embætti hennar og David Cameron varð utanríkisráðherra í stað Cleverlys. Braverman bir…
  continue reading
 
Tveir pólitískir skandalar í grannlöndum okkar voru til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson. Annars vegar ráðvillt bresk ríkisstjórn og fálmkennd viðbrögð í upphafi COVID-faraldursins eins og komið hefur fram í vitnaleiðslum nefndar sem falið var að rannsaka…
  continue reading
 
Loading …

Короткий довідник

Слухайте це шоу, досліджуючи
Відтворити